Ég ákvað að skella hérna inná eina litla færslu, þar sem ég er
ekki búin að skrifa meira en 2 línur í næstum því 2
mánuði.
Kosningar í MR eru í þessari viku, því miður er ég að missa af
þessu atburði því að ég er veik, eins og alltaf. Allavega Dagbjört
og ég erum báðar að bjóða okkur fram í e-ð í ár, Dagbjört í stjórn
Framtíðarinnar og ég í... fótmenntadeild, jej! Vona að þetta tekst
hjá okkur í ár, allavega ég veit að Dagbjört tekur þetta alveg
feitt!! Svo eru margir aðrir í vinahópnum að bjóða sig fram; Fannar
í Inspó, Magnea í Forseta, Áslaug í stjórn (eins og Dagbjört) og...
man ekki meir. Þetta verður kosningabarátta uppá líf og dauða! Óska
mínum konum og mönnum góðs gengis og við tjúttum á föstudaginn!
Á laugardaginn, á hitastillandi töflum, með trönuberjasafa í
hægri hendinni og með Gunna og Darra í vinstri mætti ég í afmæli
til hennar Magneu! Elska var með þvílíkt teiti, en verst var að ég
fór snemma heim, ég frekar veik og Gunni (fatlaður) tognaður á
ökkla. Þannig að við brunum í apótekið að kaupa nefsprey svo heim
að lúlla.
Jæja nú get ég ekki meir, get ekki andað.
kveðja, Ella
P.S. myndir frá afmælinu eru komnar inn, Darri eins og venjulega
átti kvöldið!